top of page

Lƶg til aư spila undir fyrsta dansinn ykkar

Hér eru nokkur lög sem þið getið íhugað að spila eða lÔta tónlistarmennina sem þið hafið bókað spilað meðan þið takið ykkar fyrstu spor sem hjón.


ƞaư getur veriư erfitt aư velja lag ef maưur er ekki meư neitt lag sem er svona ykkar lag en Ć©g mƦli meư aư velja bara eitthvaư sem hrĆ­fur ykkur og þiư getiư sƩư fyrir ykkur aư hlusta Ć” og dansa undir. ƞaư þarf ekki aư vera eitthvaư sĆŗper sĆ©rstakt og einstakt eưa eitthvaư sem þiư hafiư hlustaư Ć” Ɣưur. Ɖg og maưurinn minn vorum ekki meư neitt lag svo viư hlustuưum bara lengi Ć” allskonar lƶg þangaư til viư fundum eitthvaư sem viư fórum aư bera ƶnnur lƶg viư og þÔ vissum viư aư viư hƶfưum fundiư lag sem viư fĆ­luưum. ƞaư var ekkert sĆ©rstakt lag en okkur fannst þaư fallegt. HĆ©r eru nokkrar hugmyndir um þaư hvernig þú gƦtir fundiư fullkomna lagiư fyrir ykkur.


ree

Ekki leggja of mikla Ôherslu Ô þennan eina dans - hafðu gaman og ekki taka því og alvarlega.


Veldu lag vegna augnabliks sem það tÔknar í ykkar sambandi?


Veldu lag vegna textans?


Ef þið deilið uppÔhalds lagi skaltu velja það!


Veldu lag vegna þess ykkur finnst það rómantískt?


Ef þú ert í erfiðleikum með að velja, veldu það sem hreyfir við þér.


Ekki skammast þín fyrir lög sem þú fílar, þetta er fyrsti dansinn þinn!


ĆžĆŗ þarft ekki aư elska fyrsta dansinn ykkar, bara aư njóta hans og augnabliksins.


Spyrðu vini og fjölskyldu um hugmyndir, gætir notað það sama og foreldrar ykkar.


Skoðaðu hvaða lög frægt fólk hefur valið fyrir fyrsta dansinn sinn.


ĆžĆŗ gƦtir valiư lag Ćŗr uppĆ”halds þættinum ykkar eưa mynd.


Veldu lag sem passar við salinn ykkar og brúðkaupsþema.


Veldu lag sem þér finnst þægilegt að dansa við.


ĆžĆŗ gƦtir alltaf tekiư alla meư Ć­ fyrsta dansinn þinn til aư lĆ©tta Ć” Ć”laginu.


Ekki velja lag Ɣ sƭưustu stundu!


Spyrðu brúðkaupshljómsveitina þína um tillögur.


Farðu í danstíma og fÔðu rÔð þar.


Ef þú finnur það ekki og ert í vandræðum, slepptu bara fyrsta dansinum!





ree

Mynd eftir Blik Studio og Lisadigiglio

bottom of page