
Viðburðar bréfsefnið, þar að segja skiltin og pappírinn gerir mun meira fyrir daginn þinn en þú gætir ímyndað þér. Það getur skreytt salinn þinn til muna, gefið viðburðinum meiri áferð og dýpt. Einnig bætir það við lit inn í palettuna þína sem annars gæti vantað ef þú sleppir því eða sparar á þessum lið. Ég mæli alltaf með að hafa fallegt bréfsefni og spá vel í því eins og hvern annan þátt í skreytingunum þínum.
Ég lendi þó oft í því að gleyma að gera ákveðið viðburðar bréfsefni eða hugsa eftir á að það hefði verið gott að hafa ákveðið bréfsefni sem ég bara gleymdi að nefna við brúðhjónin mín. Svo hér er listi af öllu því brefsefni sem þú getur haft á deginum þínum bæði fyrir mig og þig til að fara yfir. Ekkert á honum er endilega möst en það er alltaf gott að spá í aðstæður á deginum þínum hvort það sé nauðsynlegt. Eins og ef að athöfnin er með mörg atriði þá er gott að hafa dagskrá eða ef að athafnar svæðið er lang frá þá væri gott að hafa merkingar eða kort til að auðvelda gestum að finna staðinn.
Athöfn
Velkomin skilti
"Unplugged skilti" - skilti sem segir fólki að vera ekki að taka myndir á meðan athöfnin stendur yfir
Dagskrá
Cone (form) fyrir rósablöð í kast
Merking fyrir kast eftir athöfn
Merking að athafnar stað
Textar að lögum sem sungin verða
Heit bækur
Skrautskrifað bréf til að gefa hvort öðru á deginum

Veisla
Velkomin skilti (hægt að endurnýta úr kirkju)
Sætaskipan - hægt að leika sér með þetta á allskonar hátt.
Dagskrá skilti
Barseðil skilti
Gestabóka skilti
Borðnúmer
Matseðlar
Sætamerkingar
Barseðill á borð
Aukalegir hlutir sem er gaman að hafa
Hastagg skilti
Staðreyndir um brúðhjónin
QR kóði sem sendir fólk á google photos möppu svo allir geta sent ykkur myndir úr símanum eftir daginn
Instagram leikur skilti
Photobooth skilti
Gefðu okkur heilræði skilti
Merkingar fyrir hlaðborð
Banner bakvið brúðhjón
Coaster
Áprentaðar sérvéttur
Kokteila pinnar í glös
Takk gjafir
Sérhannaðar smákökur
Merktar makkarónur
Quote úr uppáhalds lögum hér og þar
Vonandi hjálpar þessi listi þér og láttu mig vita hér að neðan ef ég hef gleymt einhverju eða þér finnst eitthvað vera möst.
Ljósmyndir: Sunday and white weddings, Styrmir og Heiðdís og Iceland elopement photography
Comments